Spáð kólnandi veðri

Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður hæg breytileg átt í dag og stöku él. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands mun ganga í norðaustan 8-15 með snjókomu seint á morgun. Hiti um frostmark í dag, en síðan frost 1 til 7 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:
Suðvestan 3-10 m/s og bjartviðri en vaxandi norðaustanátt á Vestfjörðum eftir hádegi og snjókoma um norðanvert landið um kvöldið. Hiti um frostmark að deginum, en 0 til 5 stig SV-til.

Á miðvikudag:
Norðan og norðaustan 8-15 m/s en norðvestan 5-13 m/s austantil. Snjókoma eða él um landið norðanvert og með suðurströndinni annars skýjað með köflum en bjartviðri vestanlands. Frost 0 til 10 stig.

Á fimmtudag:
Norðaustan og austan 5-15 m/s, hvassast NV-lands. Snjókoma eða éljagangur um allt land, síst austantil. Frost 0 til 12 stig, svalast NA-lands.

Á föstudag:
Austan- og norðaustanátt og snjókomu í flestum landshlutum. Hægt hlýnandi veður.

Á laugardag:
Lítur út fyrir sunnan og suðaustanátt, væta á köflum hlýnandi veður.

Á sunnudag:
Útlit fyrir fremur svala austanátt.

Fleiri fréttir