Spáð rigningu í nótt
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er hæg austlæg átt og skýjað, en fer að rigna í nótt. Úrkomulítið á morgun. Hiti 3 til 10 stig yfir daginn.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Austlæg átt, 5-13 m/s. Rigning með köflum um landið sunnanvert, en úrkomulítið norðantil á landinu. Hiti 0 til 8 stig, mildast sunnanlands.
Á sunnudag:
Austlæg átt 8-15 m/s. Rigning sunnan- og austanlands, rigning eða slydda norðantil um kvöldið, en lengst af úrkomulítið á Vesturlandi. Hiti breytist lítið.
Á mánudag og þriðjudag:
Suðlæg átt 5-10 m/s og skúrir, einkum sunnan- og vestanlands, en þurrt og bjart að mestu um landið norðaustanvert. Fremur milt að deginum.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt með dálitlum skúrum eða éljum og heldur kólnandi veðri.