Spáð skaplegu veðri um hvítasunnuna en engum hlýindum

Loks virðist veðrinu vera að slota hér á Norðurlandi vestra og útlit fyrir skaplegt veður um hvítasunnuhelgina þó ekki verði reyndar hlýindunum fyrir að fara. Í morgun var kalt á Króknum og það meira að segja snjóaði pínu í morgunsárið. En nú gerir Veðurstofan ráð fyrir að það birti þegar líður á daginn en almennt er reiknað með um fimm stiga hita og fimm m/sek að norðan í dag.
Veðurstofan spáir 5-7 stiga hita um helgina og hægum vindi en mögulega einhverjum skúrum. Upp úr helgi fara hitatölur hækkandi og samkvæmt spákorti Birtu þá stekkur hitinn í 17 gráður eftir viku – það er að vísu föstudagurinn 13. þannig að ekki er nú víst að það gangi eftir,
Vegir er nú greiðfærir að öðru leyti en því að varað er við grjóthruni á Siglufjarðarvegi og Lágheiði er orðin ófær en hún var orðin fær óvenjusnemma í ár, enda veturinn snjóléttur ólíkt júnímánuði.