Spáð slyddu eða snjókomu í dag
Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðaustan 8-15 og slydda eða snjókoma með köflum í dag, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Hiti 0 til 4 stig og sums staðar vægt næturfrost.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Norðaustan 5-13 m/s á N-verðu landinu, snjókoma eða slydda með köflum og hiti um frostmark. Heldur hægari breytileg átt S-til, rigning eða slydda og hiti 0 til 5 stig.
Á miðvikudag:
Norðan og norðaustan 5-13 m/s. Él N-til og vægt frost, en hægari syðst og skúrir eða él og hiti 0 til 5 stig.
Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti):
Norðan 5-13 m/s. Él N-lands og syðst, annars úrkomulaust. Frost 0 til 7 stig, mest í innsveitum fyrir norðan, en frostlaust með suðurströndina.
Á föstudag:
Fremur hæg vestlæg átt og víða bjartviðri, en skýjað og jafnvel rigning með V-ströndinni. Frostlaust vestanlands.
Á laugardag:
Útlit fyrir vestanátt með rigningu eða slyddu, einkum um landið vestanvert. Hlýnar um tíma.
Á sunnudag:
Norðan átt með éljagangi og frosti um mest allt land.