Stormur á Tröllaskaga og Skagaströnd

Vonskuveður hefur gengið yfir landið í nótt og í morgun. Lægðin er nú yfir landinu, rétt 930 millibör. Samkvæmt Veðurstofu Íslands er stormur í kringum Tröllaskaga og Skagaströnd núna um hádegisbil. Spáð er vaxandi suðvestanátt, 18-28 m/s upp úr hádegið, hvassast á annesjum, en hægari í kvöld. Hiti um og yfir frostmarki.
Vegir á Norðvesturlandi eru yfirleitt vel færir þótt sumstaðar sé nokkur hálka, einkum á fjallvegum. Flughálka er frá Ketilás í Siglufjörð.
Á morgun er spáð suðaustan 10-18, úrkomulítið og kólnar heldur.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag (nýársdagur):
Suðlæg átt 8-15 m/s og él, en hægari og þurrt á N-landi. Frost yfirleitt 0 til 8 stig.
Á laugardag:
Suðvestlæg átt 5-13 m/s og dálítil snjókoma eða él, en þurrt að mestu á N-landi. Hægari austlæg átt og úrkomulítið síðdegis. Kólnandi veður.
Á sunnudag:
Gengur í austan 8-15 m/s með slyddu eða snjókomu S- og A-til og hlýnar heldur. Annars hægari og úrkomulítið.
Á mánudag og þriðjudag:
Austlæg átt og að mestu þurrt, en dálítil él SA- og A-lands. Frost 0 til 7 stig, en frostlaust við S-ströndina.