Spáir vætu út vikuna
Nú fer að breyta til í veðrinu á Norðurlandi vestra því Veðurstofan hefur boðað úrkomu á morgun. Það er ekki seinna vænna þar sem hundadagar hófust síðastliðin föstudag en því hefur verið haldið fram að ef rignir fyrstu þrjá hundadaganna muni verða votviðrasamt það sem eftir liði þá góðu daga en þeir endast allt til 23. ágúst. Þar sem þeir þrír fyrstu voru þurrir og góðir gerir veðurfræðideild Feykis ekki ráð fyrir rigningarsumri.
Spá Veðurstofunnar fyrir Strandir og Norðurland vestra er eftirfarandi:
Hæg breytileg átt eða hafgola og víða léttskýjað en sums staðar þokubakkar við ströndina. Stöku síðdegisskúrir í innsveitum. Norðlæg átt, 3-8 m/s á morgun, skýjað að mestu og rigning með köflum. Hiti 10 til 18 stig, svalast á annesjum.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag og föstudag:
Hæg breytileg átt. Skýjað eða skýjað með köflum og víða skúrir. Hiti 10 til 18 stig.
Á laugardag:
Hægt vaxandi suðaustan átt. Dálitlar skúrir, en fer að rigna suðvestantil um kvöldið. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast norðanlands.
Á sunnudag:
Ákveðin suðaustan átt og rigning um allt land. Hægari og úrkomuminna síðdegis. Hlýtt í veðri.
Á mánudag:
Útlit fyrir norðlæga átt. Væta á norðanverðu landinu, en léttir til sunnan heiða. Kólnandi veður.