Spákonuhof á Sjónvarpsstöðinni N4 á dögunum
Spákonuarfur hefur frá árinu 2007 unnið að ýmsum verkefnum, á sviði menningar og sögu, sem tengjast Skagaströnd. Mörg þeirra verkefna tengjast Þórdísi spákonu en hún er fyrsta nafngreinda persónan sem vitað er að hafi átt heima á Skagaströnd, nánar tiltekið á bænum Spákonufelli.
Þórdís var uppi á síðari hluta 10. aldar. Nafn hennar kemur víða fyrir í frásögnum fyrri tíma, bæði lof og last. Hún var þekkt fyrir að vera kvenskörungur mikill og standa jafnfætis helstu höfðingjum. Einnig var hún forspá og fjölkunnug. Þá fóstraði hún Þorvald víðförla, fyrsta kristniboðann á Íslandi.
Sjónvarpsstöðin N4 var á ferðinni á Skagaströnd í lok maí og tók viðtal við Dagnýju Sigmarsdóttur og Ernst J Backman um uppbyggingu Spákonuhofs í gamla samkomuhúsbragganum. Viðtalið má finna á http://www.n4.is/tube/file/view/1816/.
/Húni.is