Spennandi matreiðslukeppni Höfðaskóla

Í vetur hafa 8 nemendur 9. - 10. bekkja Höfðaskóla á Skagaströnd verið í heimilisfræðivali tvo tíma á viku. Fyrir helgi var svo efnt til matreiðslukeppni meðal þeirra þar sem þau áttu að elda og bera fram rétt að eigin vali. Nemendur þurftu að huga að bragði, útliti og vanda vinnubrögð auk þess sem kostnaður mátti ekki fara yfir 1000 kr.

Á heimasíðu skólans segir að nemendurnir hafi lagt mikinn metnað í vinnuna og var afraksturinn eftir því glæsilegur og bragðgóður. Dómarar í keppninni voru Gunnar Halldórsson matreiðslumaður og Guðbjörg Ólafsdóttir matgæðingur og fyrrum heimilisfræðikennari. Eftir vandlega umhugsun komust þau að þeirri niðurstöðu að eftirtaldir hefðu unnið keppnina:

1. sæti - Saga Lind Víðisdóttir með franska súkkulaðitertu með chili/appelsínusósu

2. sæti - Lilja Svandís Hallgrímsdóttir með fylltar kjúklingabringur

3. sæti - Sæþór Bragi Ágústsson með beikonvafðar kjúklingabringur

Vegleg verðlaun voru veitt og voru þau gefin af MS, Samkaup Úrval, Vilko og Kántrýbæ.

Fleiri myndir úr keppninni má sjá á myndasíðu skólans.

/Höfðaskóli

Fleiri fréttir