Spennandi starfsár að hefjast hjá Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps mun hefja spennandi starfsár með æfingu í Húnaveri nk. mánudag, þann 22. október, og hefst hún kl. 20:30. Í auglýsingu í nýjasta eintaki Gluggans segir að í vetur verða söngæfingar 1-2 í viku og æfingastaðir Húnaver og Blönduóskirkja.

Aðalverkefni vetrarins er söng dagskrá með lögum Geirmundar Valtýssonar .

„Nýir félagar og kórfélagar sem hafa verið í fríi sérstaklega velkomnir,“ segir í auglýsingu. Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Ingvarsson, Sólheimum, í símum 452 7150 eða 893 4006.

Fleiri fréttir