Spennandi tækifæri fyrir ungt fólk
Snorri West verkefnið leitar að ungri manneskju á aldrinum 18-28 ára til að taka þátt í fjögurra vikna sumardagskrá frá 9. júlí - 9. ágúst, þar sem einn þátttakandi var að detta út. Snorri West er fjögurra vikna sumarævintýri fyrir unga Íslendinga (18-28 ára) á slóðum Vestur-Íslendinga í Kanada og Bandaríkjunum. Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg.
Þátttökugjald er 2,200 kanadadalir og hefur þegar verið niðurgreitt af aðilum vestra. Innifalið er flug, fæði og húsnæði, ferðir innanlands, menningardagskrá og ýmislegt fleira. Hafðu endilega samband í síma 551-0165 eða 895-5055 ef þú hefur áhuga!
Nánari upplýsingar um sumarævintýrið má finna á heimasíðu verkefnisins, www.snorri.is.
/Fréttatilkynning