Spor birnunnar á Hrauni á Skaga
Myndir af meintum fótsporum hvítabjarnar, sem talið er að hafi sést á sundi í Húnaflóa í fyrradag, voru birtar í fjölmiðlum í gær en myndirnar voru teknar í fjörunni í Sandvík, rétt fyrir neðan Geitafell á Vatnsnesi. Þá dró dýrafræðingurinn Karl Skírnisson í efa að um spor eftir hvítabjörn sé að ræða, í kvöldfréttum Rúv, þar sem honum þótti myndirnar ógreinilegar.
Jón Pálmason frá Sauðárkróki tók mynd af ísbjarnarsporum á Hrauni á Skaga þann 17. júní 2008, örfáum andartökum eftir að birnan sem kom þar á land var felld. Hann vildi gera fólki grein fyrir því hvernig spor hvítabirnir skilja eftir sig, en mikilvægt er að vera vakandi fyrir þessum hættulegu dýrum.
Á myndinni má sjá greinileg fótsporin þar sem mótar fyrir hverri tá og hvernig birnan dró klærnar eftir jörðinni á göngu sinni. En hvítabirnir hafa breiða og stutta hramma að framan en lengri að hramma aftan en birnirnir synda með framfótunum en stýra með afturfótunum, samkvæmt Enchantedlearning.com.
Leitin af hvítabirninum hélt áfram á hádegi í dag en samkvæmt heimasíðu Landhelgisgæslunnar var ákveðið, eftir samráð Landhelgisgæslunnar og lögreglunnar á Blönduósi, að þyrla Gæslunnar verði áfram notuð til þess að leita að hvítabirninum. Leitað verður á Vatnsnesi en ekki verður leitað lengi í dag nema ákveðnar vísbendingar um farir bjarnarins komi fram.
„Fólk er beðið að hafa varann á sér og tilkynna til lögreglu verði það vart við eitthvað einkennilegt. Hvítabirnir eru hættulegir og óvist hvar dýrið er, það gæti verið hvar sem er við Húnaflóa segir Hilmar Þór Hilmarsson,varðstjóri hjá lögreglunni á Blönduósi. Lögreglan er ekki með aukinn mannskap eins og er en til greina kemur að kalla til fleiri menn segir Hilmar,“ segir á Rúv.is