Spornað við svartri atvinnustarfsemi

Frá 1. maí hátíðarhöldum á Sauðárkróki 2015. Mynd: KSE
Frá 1. maí hátíðarhöldum á Sauðárkróki 2015. Mynd: KSE

Svört atvinnustarfsemi hefur verið mjög í umræðunni að undanförnu og eru stéttarfélög nú í átaksaðgerðum til að sporna við henni. Slíkt eftirlit hefur raunar verið viðhaft um árabil, en eins og haft var eftir Þórarni G. Sverrissyni, formanni Öldunnar stéttarfélags í Skagafirði, í síðasta tölublaði Feykis er nú verið að „girða sig í brók“ og taka þetta fastari tökum.

Segir hann að eftirlit af þessu tagi hafi viðgengist um árabil en oft orðið útundan, þar sem það sé í mörg horn að líta hjá stéttarfélögunum. Nú sé hins vegar í undirbúningi þátttaka í átaki í þeim efnum. Hluti af því eftirliti sé að fara á vinnustaði og kanna hvort starfsfólk sé með atvinnuleyfi hérlendis og svokölluð vinnustaðaskírteini meðferðis.

Í auglýsingu frá stéttarfélaginu Samstöðu sem birt var í síðasta tölublaði Sjónaukans í Vestur-Húnavatnssýslu kemur fram að stéttarfélög um allt landi vinni nú að því að uppræta ólöglega sjálfboðastarfsemi. Slík störf í efnahagslegum tilgangi séu lögbrot og teljist félagsleg undirboð á vinnumarkaði og það verði ekki liðið af hálfu verkalýðshreyfingarinnar.

Fleiri fréttir