Vill skýringu á ávinningi af sameiningu heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni

Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi, hefur beint spurningum til heilbrigðisráðherra um ávinning af sameiningu heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Elsa Lára óskar eftir upplýsingum um sparnað af sameiningu eftirtalinna heilbrigðisstofnana: Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, þ.e. á Akranesi, í Borgarnesi, Ólafsvík, Grundarfirði, Stykkishólmi, á Hólmavík og Hvammstanga. Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, þ.e. á Patreksfirði og Ísafirði. Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, þ.e. á Blönduósi og Sauðárkróki.
Elsa Lára spyr ráðherra einnig hvort rekstrargrundvöllur þessara heilbrigðisstofnana hafi verið styrktur frá sameiningu og eftir atvikum hvernig það sundurliðast það eftir fyrrgreindum stofnunum.
Samkvæmt þingsköpum hefur ráðherra 15 þingdaga til að svara fyrirspurninni.