Sr. Solveig Lára valin vígslubiskup á Hólum
Í dag voru talin atkvæði í síðari umferð kosningar til embættis vígslubiskups á Hólum og hlaut þá sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir kosningu í embættið. Auk Solveigar var sr. Kristján Björnsson einnig í kjöri í seinni umferð.
Samkvæmt heimasíðu Þjóðkirkjunnar féllu atkvæðin þannig að sr. Kristján Björnsson fékk 70 atkvæði og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir fékk 96 atkvæði. Alls voru 181 á kjörskrá, 174 greiddu atkvæði eða 96 %. Þrjú atkvæði voru auð og fimm ógild.
Sr. Solveig Lára verður vígð í embætti þann 12. ágúst næstkomandi, á Hólahátíð, af sr. Agnesi M. Sigurðardóttur sem tekur við embætti biskups Íslands í næstu viku. Solveig tekur við af sr. Jóni Aðalsteini Baldvinssyni sem var vígður biskup á Hólum í júní 2003.
Solveig Lára Guðmundsdóttir er sóknarprestur á Möðruvöllum í Hörgárdal en hún var áður sóknarprestur á Seltjarnarnesi. Eiginmaður hennar er sr. Gylfi Jónsson. Þau eiga fjögur börn og tvö barnabörn.
Sr. Solveig Lára segir á heimasíðu Þjóðkirkjunnar:
„Mér efst í huga óendanlegt þakklæti fyrir það að svo margir skyldu treysta mér til að sinna þessu embætti sem ég hlakka mikið til að takast á við,“ sagði sr. Solveig Lára þegar úrslit voru ljós. „Það er búið að vera ótrúlega skemmtilegt að ferðast um Hólastifti og kynnast öllu þessu frábæra fólki sem að nú hefur rétt að velja biskup og ég hlakka mikið til að vinna með því áfram. Og ég er þakklát Guði fyrir handleiðslu hans í gegnum þetta langa ferli.“
Þar má einnig sjá yfirlýsingu frá sr. Kristjáni Björnssyni:
„Það varð eindreginn vilji kjörmanna að fá sr. Sólveigu Láru Guðmundsdóttur sem næsta vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal. Árna ég systur minni heilla í vandsamri þjónustu sem hún hefur verið valin til. Við þessi úrslit þakka ég öllu því góða fólki sem lagði framboði mínu lið með áhuga og stuðningi. Þakka ég góð kynni. Bið ég Guð að blessa kirkjuna í Hólaumdæmi og Þjóðkirkjuna okkar.“