SSNV og Farskólinn semja um stuðning samtakanna við námskeið fyrir bændur

Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra hyggst standa fyrir námskeiðshaldi fyrir bændur á komandi vetri. Námskeiðin munu miða að því að veita bændum fræðslu um þróun, fullvinnslu og markaðssetningu afurða í takt við hugmyndafræðina bak við Beint frá býli. Verkefnið er áhersluverkefni sóknaráætlunar Norðurlands vestra frá árinu 2017 og munu Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) verða bakhjarl námskeiðanna. Greint er frá þessu á vef SSNV.
Námskeiðin sem um ræðir eru tvenns konar og er gert ráð fyrir að þau hefjist að lokinni sláturtíð. Annars vegar Beint frá býli námskeið sem haldið verður í Húnavatnssýslum og verður með sama sniði og samskonar námskeið sem haldið var í Skagafirði síðastliðinn vetur og mæltist einkar vel fyrir. Hins vegar er um að ræða námskeiðsröð í fullvinnslu ýmissa afurða, svo sem úrbeiningu á kind og folaldi, hrápylsugerð, kæfugerð, heitreykingu á kjöti, ostagerð o.fl. Fyrirhugað er að halda níu mismunandi námskeið og verður hægt að sækja stök námskeið eða alla námskeiðsröðina. Eftirspurn hefur verið eftir námskeiðum af þessum toga enda leita bændur í síauknu mæli leiða til að fullvinna afurðir sínar.
„Norðurland vestra er landbúnaðarhérað og mikilvægt að bændur fái stuðning við að vinna að virðisaukningu þeirrar hrávöru sem hér er framleidd. Um slíkt er fjallað í Sóknaráætlun Norðurlands vestra árin 2015-2019. Bæði þessi námskeið sem SSNV gerist nú bakhjarl fyrir uppfylla það skilyrði vel,“ segir á vef samtakanna.
Verkefnisstjóri námskeiðanna er Halldór B. Gunnlaugsson og segir hann stuðning samtakanna vera mikilvægan lið í að geta sett þau saman og einnig svo hægt sé að bjóða þau á viðráðanlegu verði.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.