SSNV vekur athygli á breytingum við gerð fjárlaga ársins 2012
Á árinu 2012 verða gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hættir úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til félaga, samtaka og einstaklinga eins og verið hefur. Alþingi mun áfram ákvarða umfang styrkja til einstakra málaflokka en úthlutun þeirra mun flytjast til ráðuneyta, lögbundinna sjóða, menningarráða landshluta eða annarra sem sjá um og bera ábyrgð á viðkomandi málaflokkum.
Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu leyti sem þau falla ekki undir aðra lögbundna sjóði eða samninga, svo sem menningarsamninga eða vaxtarsamninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir.
Umsóknarfrestur er til 2. desember og úthlutað er einu sinni á ári eða eigi síðar en 31. janúar ár hvert. Sjá nánar á vef viðkomandi ráðuneyta:
Mennta- og menningarmálaráðuneyti, www.menntamalaraduneyti.is
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, www.sjavarutvegsraduneyti.is
Umhverfisráðuneyti, www.umhverfisraduneyti.is
Velferðarráðuneyti, www.velferdarraduneyti.is
Vert er að hvetja alla sem hafa fengið framlög eða eru að vinna að verkefnum sem ættu heima undir viðkomandi liðum að huga að umsóknum sem fyrst.
Nánari upplýsingar og aðstoð veita:
Skagafjörður:
Katrín María Andrésdóttir, verkefnisstjóri hjá SSNV, sími 455-6119 – netfang: kata@ssnv.is
Sigfús Ingi Sigfússon, verkefnisstjóri hjá Sveitarfélaginu Skagafirði, sími 455-6170 – netfang: sigfus@skagafjordur.is
Austur Húnavatnssýsla
Ingibergur Guðmundsson, menningarfulltrúi, sími 452-2901 – netfang: menning@ssnv.is
Stefán Haraldsson, atvinnuráðgjafi, sími 455-4300 – netfang: stefan@ssnv.is
Húnaþing vestra
Gudrun Kloes, atvinnuráðgjafi, sími 455-2515 – netfang: gudrun@ssnv.is.
Jón Óskar Pétursson, framkvæmdastjóri, sími 455-2510 – netfang: jonoskar@ssnv.is.
Vinsamlegast hafið samband tímanlega svo hægt verði að verða við öllum óskum um upplýsingar og/eða aðstoð.
/Fréttatilkynning