Staða rektors Háskólans á Hólum laus til umsóknar

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur auglýst stöðu rektors Háskólans á Hólum lausa til umsóknar en það er í samræmi við lög um búnaðarfræðslu sem kveða á um að staða rektors sé veitt til 5 ára í senn og skuli auglýst í hvert skipti.  Næsta skipanatímabil rektors hefst 1. janúar 2012.

 

„Eftir talsverða umhugsun hef ég ákveðið að sækja ekki áfram um starfið heldur hverfa að starfi mínu sem prófessor í fiskeldis- og fiskalíffræðideild. Ég tel að fyrir akademískt embætti af þessum toga sé regluleg endurnýjun mikilvæg. Ég hef nú gegnt stöðu skólameistara og síðan rektors í samtals 12 ár“, sagði Skúli Skúlason rektor í samtali við Feyki.

Samkvæmt lögum mun háskólaráð Háskólans á Hólum fara yfir umsóknir um embættið og veita mennta- og menningarmálaráðherra umsögn um umsækjendur.

Fleiri fréttir