Staða slökkviliðs A-Hún veldur áhyggjum
Mannvirkjastofnun, sem hefur eftirlit með slökkviliðum landsins, hefur samkvæmt Ruv.is, sent harðort bréf til Brunavarna Austur-Húnavatnssýslu, þar sem lýst er áhyggjum af stöðu slökkviliðsins, tækjabúnaði og mannafla.
Í bréfinu kemur fram að tíð mannaskipti hafi orðið hjá slökkviliðinu, ekki sé til staðar gild brunavarnaráætlun, og óljóst sé hvort til staðar sé nægur mannskapur í brunaútköll og segir á ruv.is að Mannvirkjastofnun vilji að Neyðarlínan verði án tafar upplýst um stöðu mála og tryggt verði með samningum við nágrannasveitarfélög að viðbragði við útköllum verði sinnt.
/ruv.is