„Staðhæfingar sem standast ekki“

Ráðstefna um líknarmeðferð verður haldin á Grand Hótel laugardag 12. október nk. frá kl. 14:00 til 16:00. Fyrirlesarar verða Arndís Jónsdóttir, sérfræðingur í líknarhjúkrun á Landspítala, Valgerður Sigurðardóttir, yfirlæknir á líknardeild Landspítala og Gunnar Hersveinn heimspekingur og rithöfundur en Rósa Kristjánsdóttir, djákni og hjúkrunarfræðingur verður fundarstjóri. Hægt verður að fylgjast með ráðstefnunni í gegnum fjarfundabúnað í fjarfundaherbergi Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki. Gengið er inn að sunnan og er öllum heimill aðgangur.

Markmið ráðstefnunnar er að fræða um líknarmeðferð og vinna gegn mýtum „staðhæfingum sem standast ekki“. Einkunnarorð Alþjóðadags líknarþjónustu 12. október 2013 eru: Baráttan fyrir alþjóðlegri viðurkenningu á mikilvægi líknarþjónustu - Staðhæfingar sem standast ekki.

Alþjóðadagur líknarþjónustu er haldinn árlega á vegum Alþjóðasamtaka um líknarþjónustu, The Worldwide Palliative Care Alliance, í samvinnu við Alþjóða heilbrigðismálastofnunina, WHO.

Að ráðstefnunni standa Hollvinasamtök líknarþjónustu, Lífið, samtök um líknarmeðferð á Íslandi, Krabbameinsfélagið, ráðgjafarþjónusta og Landspítali.

Auk Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki, er hægt að fylgjast með ráðstefnunni gegnum fjarfundarbúnaði á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Ísafirði, FSA á Akureyri, Menntaskólanum á Egilsstöðum, Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu á Höfn í Hornafirði og hjá Fræðslunetinu Fjölheimum Selfossi. Að loknum fyrirlestrunum verða fyrirspurnir og umræður þátttakenda frá öllum þátttökustöðunum.

Fleiri fréttir