Stærðfræði undir berum himni
Stærðfræðikennarar Húnavatnssýslna voru boðaðir til fræðslufundar í Grunnskólann á Blönduósi þriðjudaginn 8. nóvember s.l. Stærðfræði undir berum himni var verkefni dagsins og voru ýmis verkefni fyrir nemendur 1. – 7. bekkja kynnt fyrir þátttakendum. Miðað er við að verkefnin séu unnin utandyra.
Þóra Rósa Geirsdóttir, sérfræðingur hjá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Ingileif Ástvaldsdóttir, skólastjóri Þelamerkurskóla voru kennarar á námskeiðinu.
Námsefnið er norskt og hafa leiðbeinendur þýtt og staðfært bækurnar. Fyrir tveimur árum komu út verkefnabækur fyrir yngsta stig grunnskólans og nú í haust komu út bækurnar fyrir miðstig grunnskólans.
Bækurnar fyrir yngsta stigið eru þrjár og fjallar hver þeirra um afmarkað viðfangsefni út frá inntaki stærðfræðinnar: Mælingar, Rúmfræði og Tölur og tölfræði. Bækurnar fyrir miðstigið eru fjórar: Mælingar, Rúmfræði, Tölfræði og líkindi og Tölur og algebra. Öll verkefnin í bókunum eru tengd aðferðamarkmiðum aðalnámskrár.
Námskeiðið var á vegum Fræðsluskrifstofu A- Hún.
Myndir: Þátttakendur og leiðbeinandi.