Stærsta skemmtiferðaskip sem komið hefur til Íslands

Tvö stór skemmtiferðaskip koma til Akureyrar í dag, miðvikudaginn 5. júní. Annað skipanna, Adventure of the Sears, er stærsta skemmtiferðaskip sem komið hefur til Íslands með um 3.000 farþega og 1.000 manns í áhöfn. Skipið stoppar á Akureyri á leið sinni til Noregs.

Í dag munu því koma til bæjarins um 5.000 farþegar með skemmtiferðaskipum, auk áhafna. Búast má við miklum fjölda gesta í bænum en sjálfsagt leggja einnig margir leið sína í Mývatnsveit, að Goðafossi og í Laufás í skipulögðum ferðum. Akureyri.is segir frá þessu.

Fleiri fréttir