Stærsti lax ársins úr Vatnsdalsá

Sturla með stórlaxinn. Mynd: Mbl.is.
Sturla með stórlaxinn. Mynd: Mbl.is.

Eins og greint frá í síðasta tölublaði Feykis var laxveiði í Húnavatnssýslum með albesta móti í sumar. Á laxasvæði Vatnsdalsár lauk veiði á laxasvæðinu í september. Þar veiddust alls 1.296 laxar, þeirra á meðal stærsti lax sumarsins.

Leigutakar haldi úti rafrænni veiðibók á vef árinnar og þar kemur fram að meðallengd á veiddum laxi var rétt um 70 sm, eða 3,6 kíló. Áin ku vera þekkt fyrir stóra laxa og var hápunktur sumarsins þegar Sturla Birgisson veiddi 112 sm hænt í hnausastreng 8. ágúst í sumar. Var hann um 13,8 kíló samkvæmt þyngdarkvarða. Laxinn tók á eins tommu sunray shadow túpu, eins og sagt var frá á mbl.is í gær.

Fleiri fréttir