Stærsti lax sumarsins úr Vatnsdalsá

Stærsti lax sem veiddur hefur verið þetta sumarið var landað á laugardaginn í Vatnsdalsá í Austur-Húnavatnssýslu. Sturla Birgisson veiddi hann, en fiskurinn er heilir 112 cm að lengd og kom á í Hnausastreng í ánni. Samkvæmt frétt á mbl.is tók Sturlu um 45 mínútur að koma laxinum á land, en hann tók nánast alla undirlínuna út.

Fleiri fréttir