Starf leikskólakennara laust til umsóknar
Leikskólakennari óskast í 100% starf að leikskólanum Barnabóli á Skagaströnd frá og með 15. ágúst 2013.
Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum leikskólakennara sem er tilbúinn að koma í góðan starfsmannahóp leikskólans Barnabóls. Leikskólinn er tveggja deilda með um 32 nemendur.
Berist ekki umsóknir frá leikskólakennurum eða fólki með sambærilega menntun sem uppfylla hæfniskröfur er heimilt að ráða leiðbeinanda tímabundið til eins árs. Vakin er athygli á að skv. lögum um leikskóla frá 2008 getur leikskólastjóri farið fram á sakavottorð hjá umsækjanda. Leitast er við að jafna kynjamun og karlmenn jafnt sem konur hvött til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 24. júní 2013.
Upplýsingar og móttaka umsókna er hjá leikskólastjóra
Þórunni Bernódusdóttur
Netfang: barnabol@skagastrond.is Sími 452-2706
Heimsíða: leikskolinn.is /barnabol
Skagaströnd.is segir frá þessu.