Starfsfólk á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi ósátt með fréttir þeim tengdum
Vegna frétta í ríkisútvarpinu þann 9. okt. sl. varðandi mönnun fagstétta o.fl. hjá Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi hefur stofnunin sent frá sér fréttatilkynningu þar sem vísað er á bug þeim ávirðingum að allt sé í tómu tjóni þar á bæ. Farið er yfir þá góðu þjónustu sem Austur Húnvetningar njóta hvort heldur litið er til inniliggjanda skjólstæðinga á dvalar, hjúkrunar og sjúkrasviði stofnunarinnar sem og þeirra sem njóta þjónustu heilsugæslunnar.
Í fréttum ríkisútvarpsins er talað við Jón Torfa Halldórsson heilsugæslulækni á Akureyri um skort á heimilislæknum á landsbyggðinni. Tekur hann dæmi frá Blönduósi og segir: „Maður hefur heyrt af stöðum þar sem að hefur flosnað upp fast starfsfólk og deildir með og hef heyrt nefnt Blönduós sem dæmi frá þeim sem hafa áður unnið þar...“ Þetta sætta læknar og stjórnendur Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi sig ekki við og létu eftirfarandi tilkynningu frá sér fara:
„Mönnun fagstétta sem og ófaglærðra hjá stofnuninni er afargóð. Litið til læknamönnunar þá starfa hjá stofnuninni svo dæmi sé tekið ýmsir sérfræðingar, s.s. í heimilislækningum, skurðlækningum, hjartalækningum, lyf og innkirtlalækningum og lungnalækningum. Viðkomandi einstaklingar koma hingað reglulega og lítum við svo á að þeir veiti hér góða þjónustu. Þá koma einnig reglulega augnlæknir og bæklunarlæknir.
Austur Húnvetningar njóta á þessu sviði meiri og betri læknisþjónustu hvort heldur litið er til inniliggjanda skjólstæðinga á dvalar, hjúkrunar og sjúkrasviði stofnunarinnar sem og þeirra sem njóta þjónustu heilsugæslunnar en gengur og gerist almennt séð hjá Heilbrigðisstofnunum /heilsugæslum á landinu.
Hvað varðar þjónustu annarra fagstétta svo sem hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á dvalar, hjúkrunar og sjúkrasviði stofnunarinnar þá er og hefur verið þar full mönnun.
Varðandi heilsugæsluna þá var í vor aukið við stöðu hjúkrunarfræðings m.a. vegna aukinnar og bættrar þjónustu í heimahjúkrun. Þá er einnig rétt að geta þess að starfandi er ljósmóðir í hlutastarfi á heilsugæslu sem einnig er viðbót frá því sem orðið var. Önnur þjónusta heilsugæslu s.s. röntgen og rannsókn er einnig til fyrirmyndar sem og þjónusta sjúkraþjálfara. Hjá stofnuninni er einnig starfandi öflug sveit sjúkraflutningamanna.
Með hliðsjón að ofansögðu þá teljum við að stofnunin hafi þrátt fyrir kreppu og annað sem gengið hefur á í þjóðfélaginu tekist að halda vel sjó og það sem meira er, bætt verulega í hvað þjónustustig á öllum sviðum varðar og vísum við öllum slúðursögum um að hér sé allt í tómu tjóni, (kalda koli) á bug og þeim til minnkunar sem standa fyrir slíku. Við erum öll stolt af stofnuninni og því sem hún stendur fyrir.“
Undir þetta skrifa Valbjörn Steingrímsson forstjóri, Fjölnir F. Guðmundsson framkvæmdastjóri lækninga, Sveinfríður Sigurpálsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar, Ásdís Arinbjarnardóttir yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslusviðs, Gerður Beta Jóhannsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur hjúkrunar og sjúkrasviðs og Einar Óli Fossdal yfirmaður sjúkraflutninga.