Stefán Velemir íþróttamaður ársins hjá USAH

Húni segir frá því að 94. ársþing Ungmennasambands A-Hún. fór fram um helgina á 99 aldursári sambandsins. 30 fulltrúar voru mættir ásamt gestum frá ÍSÍ og UMFÍ. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var Íþróttamaður ársins valinn en það var að þessu sinni Stefán Velemir úr Fram á Skagaströnd en Stefán er mjög efnilegur frjálsíþróttamaður.

Auk þess var Þórhalla Guðbjartsdóttir, formaður Umf. Hvatar, sæmd silfurmerki ÍSÍ. Nánari upplýsingar um þingið verður hægt að nálgast á heimasíðu USAH innan tíðar.

Fleiri fréttir