Stefnir í hörkufjör á réttarballi í Húnaveri
Réttarball verður haldið í Húnaveri annað kvöld, laugardaginn 8. september og ætlar hljómsveitin Sigg að leika fyrir dansi en að sögn Turid Rós Gunnarsdóttur, rekstaraðila Húnavers, er þéttari takt og meiri læti erfitt að finna. Húsið opnar kl. 11 og stendur fjörið til kl. 3.
Ekki hefur verið haldið réttarball í Húnaveri um árabil en samkvæmt Turid Rós Gunnarsdóttur er mikill áhugi fyrir því að gera þetta að árlegum viðburði ef vel tekst til.
„Það eru réttir í Auðkúlurétt , Stafnsrétt, Undirfellsrétt og víðar um daginn og því um að gera að skella sér á ball um kvöldið. Við vonumst til að sjá sem flesta,“ segir Turid Rós.
Hljómsveitin Sigg ætlar að halda uppi fjörinu en tveir hljómsveitarmeðlimir eiga ættir að rekja til Húnavatnshrepps, þau eru Sif Guðmundsdóttir (söngur og hrista) frá Saurbæ í Vatnsdal og Gunnar Örn Gunnarsson (söngur og gítar) en hann ólst upp í Hvammi II í Vatnsdal.
„Sif er ein af betri söngkonum landsins og ef það þarf „professional“ söngkonu þá er leitað til hennar. Gunnar hefur verið að láta gítarinn væla og syngja í hinum ýmsu böndum frá 1990,“ segir Turid Rós.
Með þeim leika Guðni Hannesson (söngur og bassi) borgarbarn með meiru en samkvæmt Turid þá skiptir ekki máli hvort það er bassi, gítar eða eitthvað annað, þá getur Guðni spilað á það. Þorbergur Ólafsson spilar á trommur en hann ólst upp á Sauðárkrók.
Aldurstakmark er 16 ár og miðaverð er 2500 kr.