Stefnir í veiðimet í Blöndu?
Kvóti á stöng á dag í Blöndu er 12 laxar og hafa sumir veiðimenn verið að klára kvótann á fyrstu klukkustund hvers veiðidags. Mest hefur veiðin verið á svæði I en efri svæðin eru byrjuð að gefa góða veiði, sérstaklega efsta svæðið sem er númer fjögur. Veiðin hefur einnig farið vel af stað í Svartá.
Vatnshæð Blöndulóns er enn undir meðallagi og má því búast við því að hún fari seinna á yfirfall en venjulega sem þýðir að veiðidögum í Blöndu fjölgar.
Rífandi gangur er einnig í veiðinni í Miðfjarðará en hún er komin í 1.101 veidda laxa. Laxá á Ásum er komin í 425 laxa en heildarveiðin í fyrra var 211 laxar, þannig að áin hefur nú þegar tvöfaldað sig. Vatnsdalsá er komin í 318 laxa en í fyrra veiddust þar 327 laxar. Alls hafa 271 lax veiðst í Víðidalsá sem af er sumri.