Stefnir sýslumanninum á Blönduósi

Lögreglumaður á Blönduósi hefur stefnt ríkislögreglustjóra, tveimur ráðherrum og sýslumanninum Blönduósi en sá síðastnefndi neitar að ráða lögreglumanninn aftur til starfa þótt Hæstiréttur hafi sýknað hann af ákæru um kynferðisofbeldi gegn unglingsstúlku. Lögreglumanninum var vikið úr starfi áður en málið kom fyrir Hæstarétt og vill hann fá viðurkenndan með dómi, rétt sinn til að taka aftur við starfi.

RÚV segir frá því á heimasíðu sinni að maðurinn hafi verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn 15 ára stúlku í október 2010 og honum vikið úr starfi í kjölfarið tímabundið. Maðurinn var sýknaður af brotinu í héraðsdómi í mars 2011 en þegar það var tekið fyrir aftur í maí í 2012

var maðurinn sakfelldur. Þá var maðurinn rekinn úr lögreglunni, þótt málið ætti eftir að fara fyrir Hæstarétt.

Samkvæmt RÚV sýknaði Hæstiréttur manninn svo í nóvember sl. af ákærunni. Í framhaldi af því sendi ríkislögreglustjóri fyrirmæli til sýslumannsins á Blönduósi um að maðurinn yrði ráðinn aftur til starfa en Sýslumaðurinn hefur hafnað því.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir