Stefnumótun og framtíðarsýn í íslenskri ferðaþjónustu

Markaðsstofa Norðurlands í samvinnu við atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök ferðaþjónustunnar, boðar til opins fundar um mótun stefnu og framtíðarsýnar í íslenskri ferðaþjónustu. Fundurinn sem er fyrir íbúa og hagsmunaaðila í ferðaþjónustu er haldinn miðvikudaginn 25. mars kl 14-16 í Sjávarborg, nýjum veitingastað á Hvammstanga á efri hæðinni við Selasetrið. 

Fundirnir eru öllum opnir og eru einstakt tækifæri  fyrir íbúa til að taka þátt í mótun stefnu og framtíðarsýnar íslenskrar ferðaþjónustu. Markmiðið er að byggja góðan grunn fyrir framtíð ferðaþjónustunnar og stuðla þannig að bættum lífskjörum í landinu.

„Miklar væntingar eru um víðtækt samstarf við mótun stefnunnar.  Hlökkum til að hitta ykkur!“ segir loks í fréttatilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.

Fleiri fréttir