Steingrímur J. vill lánsveð hjá lífeyrissjóðum
Steingrímur J. Sigfússon þingmaður VG mælti í gær fyrir frumvarpi, sem heimilar ríkinu að mæta kostnaði vegna aðgerða í þágu lántakenda með lánsveð hjá lífeyrissjóðum. Frumvarpið er í samræmi við samkomulag sem náðist milli þáverandi ríkisstjórnar og lífeyrissjóðanna í aprílmánuði sl., en þá undirrituðu stjórnvöld og forsvarsmenn lífeyrissjóðanna sameiginlega viljayfirlýsingu um aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila að meðtöldum lánsveðum.
Meginmarkmið aðgerða á grundvelli viljayfirlýsingarinnar er að jafna stöðu lánsveðshópsins og þeirra sem fengu úrlausn samkvæmt svonefndri 110% leið á árinu 2011.
Samkomulag stjórnvalda og lífeyrissjóðanna er m.a. háð því skilyrði að ríkið afli sér nauðsynlegra lagaheimilda til að skuldbinda ríkissjóð til að greiða til viðkomandi lífeyrissjóða stærstan hluta kostnaðar af lækkun eftirstöðva lánsveðslána. Brýnt er að afla þessara heimilda svo hægt sé að hefja vinnu við framkvæmd lækkunarinnar, en úrlausn mála fyrir lánsveðshópinn er mikið jafnræðis- og sanngirnismál, segir í tilkynningu frá VG.
-Núverandi ríkisstjórn virðist ekki hafa sinnt um þetta mál þrátt fyrir öll sín loforð um að aðstoða skuldsett heimili. Við viljum því láta á það reyna hvort ekki sé við það fullnægjandi stuðningur á Alþingi að loksins og eftir miklar tafir hefjist nú vinna við að rétta hlut lánsveðshópsins“, segir Steingrímur.