Stelpukvöld Pókerklúbbsins Óss
Pókerklúbburinn Ós verður með stelpukvöld í Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi í kvöld, miðvikudaginn 25. janúar kl. 20. Þar verður boðið upp á kynningu og kennslu í póker og pókermót fyrir þær sem eru lengra komnar.
„Fullt af stelpum taka í pókerspil á facebook og hvernig væru nú að láta slag standa og mæta og sýna að stelpur geta vel spilað póker,“ segir í tilkynningu frá pókerklúbbnum sem birt var á Húnahorninu.
Kennslan og kynningin verður í boði hússins en þær sem vilja taka þátt í pókermótinu þurfa að greiða 1.000 krónur og rennur það í verðlaunafé kvöldsins.