Sterna ætlar að halda áfram akstri

Sterna hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna fréttar á öldum ljósvakans og víðar um að Strætó bs. muni hefja akstur á akstursleiðinni milli Akureyrar og Reykjavíkur og einnig á Hólmavík og á Snæfellsnes þann 2. september nk.

„Nokkrir einstaklingar og fyrirtæki hafa haft samband við okkur og óskað eftir áframhaldandi akstri á milli Akureyrar og Reykjavíkur annars vegar og á milli Reykjavíkur og Stykkishólms hins vegar með þeim tímasetningum sem hafa verið undanfarin ár,“ segir í fréttatilkynningunni.

Fyrirtækið hefur ákveðið að ganga til samstarfs við þá einstaklinga og fyrirtæki sem hafa óskað eftir þjónustu fyrirtækisins á ofngreindum leiðum.

 

Fleiri fréttir