Sterna í Hörpuna

Um áramótin lokaði rútufyrirtækið Sterna söluskrifstofu sinni á BSÍ. Fyrirtækið flutti í Hörpuna og hafa verið undirritaðir samningar þar um. Fyrirtækið hefur nú þegar byrjað sína sölustarfsemi þar en ætlunin er að hafa opið þar til kl 20:00 á kvöldin og einnig um helgar.

Í tilkynningu frá félaginu segir að fyrirtækið sé með dags- og sætaferðir og fyrirhugað er einnig að hefja norðurljósaferðir auk þess sem boðið verður upp á skoðunarferðir um Reykjavík. Allar þessar ferðir miðast við að afgreiðsla ferða verði úr Hörpunni og þar að auki er stefnt að því að afgreiða sætaferðirnar til Akureyrar þar einnig.

Til Akureyrar verður farið frá Hörpunni kl. 08:15 alla daga nema sunnudaga, þá er farið þaðan kl. 14:45 og aukaferðin á föstudögum fer þaðan kl. 16:45.

Fleiri fréttir