Stígamót í Skagafirði
Guðrún Jónsdóttir og Þórunn Þórarinsdóttir talskonur Stígamóta voru á Sauðárkróki fyrir helgi en Stígamót hyggjast nú í apríl hefja þjónustu við íbúa á Norðurlandi vestra og mun Þórunn koma á Sauðárkrók og vera með viðtöl við einstaklinga.
Að sögn þeirra Stígamótakvenna hafa samtökin nú þegar farið um landið og boðið sambærilega þjónustu og segja þær að því miður hafi þörfin alls staðar verið til staðar og nú þegar viti þær til þess að þörf sé fyrir starfsemina á Norðurlandi vestra enda hafi verið beðið um aðstoð.
Á Sauðárkróki buðu þær upp á svokallaðan fagfund þar sem mættu fagaðilar innan skóla, sveitastjórna, prestar og fleiri sem fengu fræðslu og starfsemi Stígamóta. Þá var haldinn opinn fundur á Sauðárkróki auk þess sem Stígamótakonur heimsóttu nemendur Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Samkvæmt tölfræði og íbúafjölda í Skagafirði segja þær að gera megi ráð fyrir að 120 stelpur og 41 strákur í Skagafirði hafi verið beitt kynferðislegu ofbeldi.
Viðtöl við fulltrúa Stígamóta kosta ekki neitt og eru án skuldbindinga.
Þær Dóra Valgarðsdóttir og Erla Einarsdóttir voru á dögunum í opinskáu viðtali í Fréttatímanum um kynferðislegt ofbeldi sem þær urðu fyrir. Viðtölin við þær má lesa hér.