Stjórn Dögunar vill sjá afsökunarbeiðni

Félagsfundur Dögunar sem haldinn var í gærkvöldi fagnar sigri lýðræðis og réttarríkis með dómi EFTA-dómstólsins á mánudag. Í tilkynningu frá félaginu segir að með nýrri stjórnarskrá haldist málskotsréttur forseta óskertur. „Til viðbótar fá kjósendur aukið tækifæri til þátttökulýðræðis, þó með tilteknum takmörkunum, óháð forsetavaldi. Síðast en ekki síst dregur ný stjórnarskrá úr hættu á þeirri spillingu og því tómlæti sem gerði Icesave mögulegt,“ segir í tilkynningunni.

Dögun hvetur til sátta og lærdóms af málinu og endurreisnar með nýrri stjórnarskrá sem að mati flokksins er löngu tímabær og ítarlega unnin af þjóð og þingi.

Félagsfundur Dögunar ályktaði að forystumenn, og einkum núverandi formenn ríkisstjórnarflokkanna sem hvöttu Íslendinga til að mæta ekki á kjörstað í þjóðaratkvæðagreiðslu um  Icesave-samningana, sjái sóma sinn í að biðja kjósendur afsökunar á þeim orðum sínum að kjósendur nýti ekki rétt sinn til að taka lýðræðislega afstöðu í jafn umdeildu og alvarlegu máli og Icesave-samningar ríkisstjórnarinnar voru.

Fleiri fréttir