Stjórn SSNV mótmælir áformum um frystingu framlaga til Jöfnunarsjóðs
Stjórn SSNV hefur sent frá sér ályktun þar sem hún harmar þau áform sem fram koma í fjármáláætlun áranna 2020–2024 og lúta að frystingu framlaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árunum 2020 og 2021.
Í ályktun samtakanna segir að samkvæmt útreikningum Sambands íslenskra sveitarfélaga muni frystingin hafa mismunandi mikil áhrif á sveitarfélög á landinu, minnst í þeim stærstu en mest í þeim minni. Tekjutap sveitarfélaga á Norðurlandi vestra muni, nái þessi áform fram að ganga, verða næstmest á landinu eða um 243 milljónir á þessu tveggja ára tímabili.
Í ályktuninni segir: „Sveitarfélög á Norðurlandi vestra hafa á undanförnum árum náð góðum árangri í rekstri og hafa með ráðdeild og hagræðingum náð að lækka skuldahlutfall umtalsvert. Vert er að taka fram að sveitarfélögin skorast síður en svo undan áframhaldandi ráðdeild til að ná sem mestum árangri og vera fær um að veita íbúum sínum sem besta þjónustu en til þess að svo megi verða þurfa tekjustofnar að vera stöðugir og áreiðanlegir.
Þrátt fyrir góðan árangur er skuldahlutfall sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra enn um 100% sem hefur í för með sér nokkurn fjármagnskostnað. Ljóst er að áhrif frystingar munu miðað við áætlanir sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa áhrif á áform sveitarfélaga. Sérstaklega þeirra sem hyggja á enn frekari niðurgreiðslu skulda og jafnvel leiða af sér aukningu á skuldahlutfalli og/eða skerðingu á þjónustu við íbúa hjá þeim sem hyggja á framkvæmdir og mögulega leiða til þess að fallið verður frá nauðsynlegum framkvæmdum.
Áhrif frystingar framlaga mun því að líkum auka enn á aðstöðumun fámennra og dreifbýlla sveitarfélaga utan þenslusvæða. Það leiðir til þess að á yfirstandandi hagvaxtarskeiði, sem skv. orðum ráðamanna er nær fordæmalaust, munu innviðir þessara fámennari sveitarfélaga líkt og þeirra á Norðurlandi vestra verða lélegri og fjárhagur þeirra lakari. Munu þau því verða enn háðari framlögum Jöfnunarsjóðs sem er á skjön við gildandi byggðaáætlun þar sem áhersla er lögð á þróun sjálfbærra byggða um land allt.“
Ennfremur er bent á það í ályktuninni að það skjóti skökku við að meðan það sé krafa af hálfu ríkisins að sveitarfélög vinni fjárhagsáætlanir til þriggja ára að fyrirhuguð skerðingaráform séu kynnt án nokkurs samtals og fyrirvaralaust og setji þannig langtímaáætlanir sveitarfélaga úr skorðum.“
Stjórn SSNV skorar á stjórnvöld að falla frá framlögðum áformum um frystingu framlaga Jöfnunarsjóðs á árunum 2020 og 2021 og koma þannig í veg fyrir skerðingu búsetuskilyrða á fámennari svæðum sem af henni munu hljótast.
Ályktunina, ásamt töflum sem sýna tekjutap sveitarfélaganna og áhrif frystingar framlaga pr. íbúa eftir landshlutum, má nálgast hér.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.