Stöðvaður fyrir hraðakstur með fíkniefni
Lögreglan á Blönduósi stöðvaði ökumann á 130 km hraða á þjóðvegi eitt við Vatnsdal á mánudag. Þar sem um góðkunningja lögreglunnar var um að ræða kviknaði grunur um að maðurinn hefði óhreint mjöl í pokahorninu. Fíkniefnahundur lögreglunnar var fenginn til að rannsaka bílinn og þefaði hann upp nokkur grömm af hörðum fíkniefnum.
Samkvæmt heimildum mbl.is fundust engin fíkniefni við fyrstu leit í bílnum en þá var farið með hann á Blönduós og ökumaðurinn færður til yfirheyrslu. Þá var kallað til fíkniefnahunds lögreglunnar og fann hann þá fíkniefnin sem höfðu verið vandlega falin í bílnum. Maðurinn sem sagðist vera á leið til Akureyrar neitaði að hafa átt fíkniefnin og var honum sleppt seint um kvöldið. Honum bíður þó ákæra fyrir hraðakstur og meðferð fíkniefna.
Á seinni árum hafa komið allnokkur mál þar sem verið er að flytja fíkniefni um þjóðveginn í gegnum Húnaþing, einkum norður og austur í land frá höfuðborgarsvæðinu og hefur þá hundurinn komið upp um marga ökumenn. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi hefur fíkniefnahundur embættisins enn og aftur sannað gildi sitt.