Stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstarfs
Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki á grundvelli menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis við SSNV. Tilgangur styrkjanna er að efla starfsemi á sviði lista, safna og menningararfs. Styrkirnir miðast við starfsemi árið 2012. Til ráðstöfunar eru 10,3 millj. kr.
Menningarráð hefur ákveðið að þeir umsækjendur hafi forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða við úthlutun ársins 2012:
- Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna- og menningararfs.
- Stuðla að nýsköpun í menningarstarfsemi.
- Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu.
- Verkefni sem flutt voru af safnliðum fjárlaga til Menningarráðs Norðurlands vestra árið 2012.
Úthlutunarreglur og umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu Menningarráðs Norðurlands vestra www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð.
Umsóknir skulu sendar Menningarfulltrúa Norðurlands vestra, Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd, eigi síðar en 24. september 2012. Þær má senda rafrænt á netfangið menning@ssnv.is. Séu þær sendar í pósti skulu þær póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.
Nánari upplýsingar veitir Ingibergur Guðmundsson, menningarfulltrúi Norðurlands vestra, símar 452 2901 / 892 3080, netfang menning@ssnv.is.