Stofna stýrihóp til að vinna viðbragðsáætlun
Almannavarnir Húnavatnssýslna hélt fund sl. miðvikudag en tilgangur hans var að fjalla um hausthretið sem gekk yfir Norðurland þann 10.–11. september sl. Farið var yfir hvernig heimamenn upplifðu þetta veðuráhlaup og hvað mætti læra af því.
Samkvæmt frétt á Húna.is var fundurinn fyrirhugaður þann 1. nóvember sl. en þurfti að fresta honum vegna óveðurs og slæmrar færðar. Viðstaddir voru auk Almannavarnanefndar Húnavatnssýslna, Víðir Reynisson frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Árni Snæbjörnsson frá Bjargráðasjóði, einnig svæðisstjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, búfjárráðunautur umdæmisins og þrír fjallskilastjórar.
Þar var einnig ákveðið að skipa fjögurra manna stýrihóp á vegum Almannavarna Húnavatnssýslna, sem vinna á viðbragðsáætlun fyrir slík „fjárskaðaveður“ og mun hann hafa samráð við þá aðila í Húnavatnssýslum sem hafa hlutverki að gegna í almannavarnaástandi.