Stofnun klasa í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra

Í dag mánudaginn 16. maí verður haldinn kynningarfundur um stofnun klasa í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra Fundurinn mun fara fram á veitingastaðnum Pottinum og Pönnunni á Blönduósi og hefst klukkan 14:00.

Í tilkynningu frá undirbúningsnefnd segir; „Boðið er til almenns kynningarfundar allra sem áhuga hafa, eiga hagsmuna að gæta og telja sig málið varða að myndaður verði klasi um Ferðaþjónustu og atvinnugreina sem tengjast henni þ.e.afleiddra greina.

Hópur fólks í ferðaþjónustu hefur um nokkurt skeið leitað samstarfsleiða til að efla starfsemi sína – auka tekjurnar. Margar hugmyndir hafa komið fram en erfiðara hefur reynst að koma þeim í framkvæmd, einkum vegna þess að óhægt er um vik að bæta vinnu hjá hverjum og einum.

Hópurinn kaus undirbúningsnefnd sem hefur nú lagt fram tillögur um leið til að af framkvæmdum verði. Mánudaginn 16. maí kynnir Lára Magnúsardóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Norðurlandi vestra þessar hugmyndir, sem hún vann í samvinnu við Sigríði Hjaltadóttur stjórnarformanni Byggðasafnsins á Reykjum.

Lagt er til að stofnaður verði klasi sem hefði það að markmiði að kortleggja stöðu ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra á sex mánuðum. Afraksturinn verður heildstæð sýn á stöðu og möguleika atvinnugreinarinnar, þar sem koma fram verkefni sem eru til, tillögur um ný verkefni, tillögur um tengingar verkefna og svo framvegis. Í stuttu máli svæðisbundin úttekt og stefna til að taka frekari skref til bóta fyrir ferðaþjónustu á svæðinu: tæki til að vinna markvisst.

Á fundinum verður svarað spurningum eins og: Hvers vegna að stofna klasa? Hver á að vinna verkið? Hvaðan fást peningar? Hvaða væntingar eru gerðar til klasamyndunar?“

Fleiri fréttir