Stofutónleikar Heimilisiðnaðarsafnsins

Helga Rós Indriðadóttir, sópransöngkona og Elín S. Sigurðardóttir, safnstjóri. Mynd: Olga Jóhannesson.
Helga Rós Indriðadóttir, sópransöngkona og Elín S. Sigurðardóttir, safnstjóri. Mynd: Olga Jóhannesson.

Helga Rós Indriðadóttir, sópransöngkona, söng á stofutónleikum Heimilisiðnaðarsafnsins sem haldnir voru sunnudaginn 18. júlí síðastliðinn. Fór hún á kostum ásamt píanóleikaranum Evu Þyri Hilmarsdóttur en þær fluttu mjög fjölbreytt lagaval, allt frá hugljúfum íslenskum vor- og sumarljóðum til þekktra aría.

Mjög góð aðsókn var á tónleikana og fögnuðu áheyrendur ákaft og fluttu þær stöllur sem aukalag “Ég skal vaka í nótt”, eftir Jónas Tryggvason.

Að sögn Elínar, safnstjóra að þá hefur Heimilisiðnaðarsafnið í fjölmörg ár staðið fyrir Stofutónleikum. Leitast hefur verið við að hafa tónleikana ólíka frá ári til árs og hafa þeir spannað yfir vítt tónlistarsvið. Flytjendur hafa ýmist verið heimafólk eða tónlistarfólk lengra að komið.

Eftir tónleikana gæddu gestir sér á kaffi og meðlæti að hætti safnsins og nutu hins frábæra útsýnis yfir ósa Blöndu í sumarblíðunni.

 
/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir