Stofutónleikar í Heimilisiðnaðarsafninu

Næstkomandi sunnudag, 25. nóvember, verða haldnir Stofutónleikar í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Þar mun Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari,  leika verk eftir Johann Sebastian Bach, Eugene Ysaÿe og fleiri tónskáld. Stofutónleikar hafa verið að ryðja sér til rúms undanfarin ár og notið síaukinna vinsælda vegna hlýlegs andrúmslofts og notalegrar stemmningar sem á þeim skapast og nálægðar flytjenda og tónleikagesta.

Tónleikarnir hefjast kl. 15.00 og er aðgangseyrir  kr. 1000.-  innifalið kaffi og „smá bakkelsi“ að tónleikum loknum.

Fleiri fréttir