Stofutónleikar með Dúó Stemmu
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
13.05.2015
kl. 09.00
Sunnudaginn 17. maí næstkomandi, á Íslenska safnadeginum, verða haldnir Stofutónleikar í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi með Dúó Stemmu. Dúóið skipa þau Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari.
Efnisskrá þeirra samanstendur af íslenskum þjóðlögum, þulum og vísum og munu þau leika á víólu, marimbu, og íslenskt steinaspil. Eftir tónleikana verður kaffi á könnunni.
Heimilisiðnaðarsafnið verður opið þennan dag frá klukkan 13 til 17. Aðgangseyrir er 1.000 krónur en ókeypis er fyrir 16 ára og yngri. Athygli er vakin á því að enginn posi verður á staðnum.