Stór styrkur til Hólaskóla

Tækjasjóður Rannís úthlutaði styrkjum fyrir skömmu þar sem Bjarni Kristófer Kristjánsson fyrir hönd Hólaskóla tók á móti einum slíkum upp á kr. 5.996 þús. Styrkurinn er ætlaður til kaupa á tæki til mælinga á súrefnisupptöku og sundgetu fiska.

Sjóðnum bárust 55 umsóknir í ár en umsóknarfresturinn rann út þann 15. mars sl. Alls var sótt um 425 milljónir króna úr sjóðnum en til úthlutunar voru um 174 milljónir og styrkti stjórn sjóðsins alls 23 verkefni. Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði til rannsókna.

Auk Bjarna Kristófers eru Helgi Þór Thorarensen og Óli Steingrímsson Hólaskóla Jónas Árnason Matís ohf, Albert Kjartansson Imsland Háskólanum í Bergen og Sigurður Sveinn Snorrason Líffræðistofnun Háskóla Íslands skráðir fyrir umsókninni.

Fleiri fréttir