Stórhríð á norðanverðu landinu í nótt og á morgun
Veðurspáin er afar slæm fyrir helgina en Veðurstofan hefur gefið út viðvörun þar sem búist er við stormi NV-til síðdegis í dag en roki eða ofsaveðri (25-32 m/s) á vestanverðu landinu á morgun. Ekkert ferðaveður verður á norðanverðu landinu og einnig er bent á að samfara óvenju lágum loftþrýstingi er stórstreymt.
Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður suðaustan 5-10 m/s og úrkomulítið, en gengur í norðaustan stórhríð í kvöld og nótt, 23-28 m/s. Hiti kringum frostmark, en frost 0 til 5 stig á morgun.
Spáð er norðanstormi eða -ofsaveðri (20-32 m/s), fyrst á Vestfjörðum síðdegis en V-lands í nótt og á morgun. Stórhríð á norðanverðu landinu í nótt og á morgun.