Stormur í aðsigi

Veðurstofan hefur gefið út viðvörun en búist er við stormi (meira en 20 m/s), fyrst NV-til í dag en um allt land seint í kvöld og á morgun. Spáin fyrir Strandir og Norðurland vestra er á þá leið að það gengur í norðaustan 13-20 með morgninum með rigningu, en slyddu til fjalla. Norðan 15-23 í kvöld og dregur úr úrkomu vestast, en bætir heldur í úrkomu um tíma á morgun. Hiti 2 til 7 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Minnkandi norðanátt V-til en NV 10-20 m/s um landið austanvert en lægir smám saman þar um kvöldið. Úrkomulítið um landið sunnan- og vestanvert, rigning austanlands, en snjókoma til fjalla fram eftir degi. Hiti 2 til 12 stig, mildast syðst.

Á miðvikudag:
V-læg átt, 5-13 m/s en vaxandi SA átt SV-til um kvöldið. Skýjað með köflum og þurrt að kalla en fer að rigna S- og V-lands um kvöldið. Hiti 1 til 8 stig, mildast S-til.

Á fimmtudag:
Ákveðin norðlæg átt, víða 8-15 m/s. Rignign um allt land, en skúrir síðdegis. Hiti breytist lítið.

Á föstudag:
Hægt minnkandi norðvestanátt. Rigning N-til en bjartviðri syðra. Styttir að mestu upp undir kvöld. Hiti 2 til 10 stig, mildast SA-til.

Á laugardag:
Útlit fyrir suðaustlæg átt með úrkomu V-til en þurru fyrir austan. Hiti breytist lítið.

Spá gerð: 09.09.2012 08:25. Gildir til: 16.09.2012 12:00.

Fleiri fréttir