Stormur í dag og útlit fyrir hvít jól
Veðurstofa íslands hefur gefið út viðvörun en búist er við stormi, eða meira en 20 m/s norðvestantil á landinu og á hálendinu í dag. Þetta á einnig við víða um land í nótt og aftur seint á morgun. Þá má búast við mikilli úrkomu á Suðausturlandi í nótt. Í nótt verður sunnan og suðaustan 18-25 m/s og talsverð rigning eða slydda á spásvæði Stranda og Norðurlands vestra.
Mun hægari verður um hádegi á morgun. Hiti 1 til 7 stig. Vestan og suðvestan 18-25 m/s með skúrum eða éljum síðdegis, fyrst S-lands, norðlægari og snjókoma NV-til, en talsvert hægari vindur norðaustantil og þurrt að mestu. Kólnandi veður.
Á miðvikudag:
Vestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og víða dálítil él. Frost 0 til 8 stig, kaldast N-lands.
Á fimmtudag:
Ákveðin suðvestanátt með éljum, en yfirleitt þurrt á N- og A-landi. Áfram fremur kalt í veðri.
Á föstudag:
Vaxandi austan- og síðar norðaustanátt með snjókomu og síðar slyddu og jafnvel rigningu, fyrst suðaustantil. Hlýnar í veðri.
Á laugardag:
Útlit fyrir stífa vestlæga eða breytilega átt með snjókomu eða slyddu og síðar éljum og kólnandi veðri.
Á sunnudag:
Breytileg vindátt, úrkomulítið og frost um mest allt land.