Stormur og rok á landinu í dag

Veðurstofan varar við stormi og roki, meðalvindi 20-28 m/s á landinu í dag og á Vestfjörðum á morgun. Veðurspáin fyrir næstu 36 klukkustundir er svohljóðandi:

Í dag, miðvikudag, má búast við austan 20-28 m/s með snjókomu S- og V-lands, en síðar slyddu eða rigningu við ströndina, 18-28 síðdegis, hvassast við S-ströndina. Hægari og úrkomulítið á N- og A-landi í fyrstu, en síðan 18-23 þar og snjókoma eða skafrenningur. Dregur verulega úr vindi og úrkomu í kvöld og nótt, en áfram stormur eða rok á Vestfjörðum.

Norðan 20-28 m/s og snjókoma eða éljagangur á vestast á landinu á morgun, hvassast á Vestfjörðum, en mun hægari suðlæg eða breytileg átt og dálítil él eystra. Heldur hlýnandi veður í bili, en kólnar aftur á morgun. Norðvestan hvassviðri eða stormur víða um land annað kvöld.

Í athugasem veðurfræðings kemur fram að litlu megi muna að að norðan strengurinn nái betur inná land á morgun fimmtudag með enn meiri vind og geta spár, og þar af leiðandi veður breyst með stuttum fyrirvara.

Fleiri fréttir