Stórskaðlegar umhleypingar
Í vetrarumhleypingunum það sem af er ári hafa landsmenn svo sannarlega fengið að reyna eitt og annað. Í kvöld og um helgina má ætla að enn verði lagt í þann reynslubanka því spáð gríðarlega vatnsveðri með sannkallaðri asahláku, mun meiri en um síðastliðna helgi.
Einari Sveinbjörnsson veðurfræðingur Veðurvaktarinnar segir vatnsveðrið verða allt annað og meira en þá. „Úrkoman í Reykjavík frá því seint í kvöld til hádegis á laugardag gæti numið 30-40 mm og jafnvel meiru í efri byggðum. Úrkoman verður mest á vestan- og sunnanverðu landinu og hitinn allt að 7°C. Töluverður vindur fylgir, SA eða SSA 15-20 m/s.“ Einar segir að mesta úrkoman verði í nótt og aftur snemma á laugardagsmorgun. Við það bætist að nýi snjórinn, sem ætla má að sé um 7-10 cm þykkur, bráðni fljótt við þessar aðstæður. Klakinn haldi betur, en hann sé hins vegar prýðis vatnsfarvegur sem geti beint rigningar- og leysingavatni í aðrar áttir en æskilegt sé með tilheyrandi skemmdarmætti.
Um liðna helgi bárust 130 símtöl í neyðarnúmer VÍS eða fimmfalt fleiri en alla jafnan um helgar. Þriðjungur þeirra sem hringdi vegna vatns átti við leka að stríða frá þaki eða svölum. Það eru ekki bótaskyld tjón og geta reynst viðkomandi dýr. Til að fyrirbyggja þau eftir föngum þarf að moka af svölum, berja klaka úr þakrennum og hreinsa þök eftir megni svo fremri sem það er hægt án þess að setja sig í hættu. Kostnaður við viðgerðir getur hlaupið á hundruðum þúsunda og forvarnirnar eru því fljótar að skila sér í heimilisbókhaldinu. Þá er nauðsynlegt að hreinsa vel frá niðurföllum og bræða klaka ofan af þeim og úr, áður en vatnsveðrið byrjar þar sem mun erfiðara er að standa í slíku þegar allt er komið á flot.
Fleiri umferðartjón og sprungnar lagnir
Í fyrstu viku ársins fjölgaði umferðartjónum um 12% miðað við sömu viku í fyrra. Endanleg tala liggur ekki fyrir þar sem tjónaskýrslur berast oft ekki fyrr en nokkrum dögum eftir tjón. Af þeim bílum sem komið hafa í tjónaskoðunarstöð VÍS er áberandi hvað dekkjabúnaður þeirra er lélegur og skiptir þá engu hvort um er að ræða fólksbíla eða jeppa. Sumir eru enn á sumardekkjum, aðrir á mjög slitnum heilsársdekkjum og enn aðrir voru á svo kölluðum nagladekkjum, þ.e.a.s. fáir eða engir naglar voru eftir í þeim.
Huga þarf að sumarhúsunum sem geta farið illa í umhleypingunum. Fimm tjón vegna frostsprunginna lagna hafa verið tilkynnt VÍS á þessu ári, sem er mjög mikið á skömmum tíma. Lekans verður oft ekki vart fyrr en hlýnar og þar sem spáð er allt að 7°C um helgina er afar brýnt fyrir sumarhúsaeigendur að ganga úr skugga um að allt sé í lagi hið snarasta eða fá einhvern til þess.
/Fréttatilkynning